

Íþróttafræðingur - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir íþróttafræðingi í endurhæfingu í heimahúsi innan heimahjúkrunar. Um er að ræða ótímabundið starf. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl næstkomandi eða eftir samkomulagi.
Endurhæfing í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inni á heimili skjólstæðings eða í hans nánasta umhverfi. Markmiðið er að endurheimta og viðhalda sjálfstæði og gera skjólstæðingnum kleift að taka áfram þátt í þeim athöfnum sem skipta hann máli. Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru með færniskerðingu og þurfa heimahjúkrun.
Endurhæfingarteymið samanstendur af þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks þar sem veitt er einstaklingsmiðuð þjónusta. Endurhæfingaráætlun byggist á þörfum og óskum skjólstæðingsins.
Endurhæfing í heimahúsi innan Heimahjúkrunar HH sinnir einstaklingum sem búa í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ.
Íþróttafræðingur vinnur í þverfaglegu teymi við að aðstoða skjólstæðinga við að vera eins virkir og sjálfstæðir í daglegu lífi og hægt er. Íþróttafræðingur metur og greinir líkamlega færni og heilsu skjólstæðings. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi hreyfingu, þjálfun og forvarnir. Skipuleggur og veitir þjónustu á sínu fagsviði í samráði við teymi. Hann tekur virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, handleiðslu, fræðslu og starfsmannafundum. Hann vinnur sjálfstætt við mat og ráðgjöf.
- Háskólanám í íþróttafræðum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
- Þekking og hæfni til að meta þarfir skjólstæðinga og finna viðeigandi lausnir
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Góð íslensku kunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Gilt ökuleyfi
- Heilsueflingarstyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska








