Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu!
Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 15 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi. Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins í fjögur skipti ásamt því að vera Fyrirmyndar fyrirtæki á vegum VR 15 ár í röð og hlotið Jafnlaunavottun 2023-2026.
Viltu dansa með okkur?
Sölu- og þjónusturáðgjafar | Selfoss
Við leitum að framúrskarandi skemmtilegum liðsfélögum til að stíga dansinn með okkur í verslun okkar á Selfossi.
Starfið er draumur í dós fyrir þau sem spila til að vinna, elska að umgangast glás af lífsglöðu fólki og vilja alltaf hafa nóg fyrir stafni. Söluhæfileikar, metnaður og bullandi þjónustulund eru lykilþættir – og brennandi áhugi á snjalltækjum og öllu hinu fína dótinu sem við seljum er auðvitað bráðnauðsynlegur.
Afhverju að vinna hjá Nova? Allt um það hér!
Auglýsing birt25. september 2024
Umsóknarfrestur2. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 3, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSölumennskaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Þjónar í hlutastarf
Íslenski Barinn
Skrifstofu og tölvuvinna
Glerverk
Lyfja Lágmúla - Lyfjatæknir á vaktarúllu
Lyfja
Lyfja Hólagarði - Umsjón verslunar
Lyfja
Sölumaður vörubíla og tækja
Kraftur hf.
Sölu- og þjónustufulltrúar - Söludeild - Hlutastarf
Bláa Lónið
Þjónustuver Arion banka óskar eftir liðsauka á Sauðárkróki
Arion banki
Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir
SÖLUFULLTRÚI Í DÖMU- OG BARNADEILD
Föt og skór ehf
CityHost (receptionist)
CityHub Reykjavik
Sölumaður í verslun
Rafkaup
Litla KMS óskar eftir móttökustjóra
Litla Kvíðameðferðarstöðin