Skrifstofustjóri öldrunarmála
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi stjórnanda til að stýra skrifstofu öldrunarmála. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvætt og lausnamiðað hugarfar, þrífst á krefjandi verkefnum og hefur metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Málaflokkar sem skrifstofa öldrunarmála ber ábyrgð á eru m.a. samþætt þjónusta heimahjúkrunar og heimastuðnings, hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir, dagdvalir, matarþjónusta og félagsstarf.
Skrifstofustjóri ber ábyrgð á að leiða faglegt starf og að þróun þjónustu sé í takt við þarfir notenda. Hann hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og stýrir forgangsröðun þeirra. Auk þessa leiðir hann samningagerð við Sjúkratryggingar Íslands m.a. vegna heimahjúkrunar og samstarf við hagaðila sem koma að öldrunarmálum.
Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn velferðarsviðs og heyrir starfið undir sviðsstjóra.
Umsækjendur verða metnir út frá grunnkröfum varðandi menntun, hæfni og reynslu. Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfnikröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.
Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Velferðarsvið kallar eftir sakavottorðum í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Hefur frumkvæði að þróun og nýbreytni í öldrunarmálum og tryggir að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd
- Stýrir faglegu starfi og daglegum rekstri skrifstofunnar ásamt samstarfi og samráði við aðrar þjónustueiningar sviðsins, stofnanir og samstarfsaðila innan og utan borgar
- Leiðir samstarf við ríkisstofnanir, s.s. Sjúkratryggingar og heilbrigðisráðuneytið meðal annars vegna samninga um heimahjúkrun
- Hefur umsjón og ábyrgð á samþættingu heimastuðnings og heimahjúkrunar í samstarfi við framkvæmdastjóra hvers þjónustusvæðis
- Ber ábyrgð á almennri upplýsingamiðlun, meðal annars til hagsmunaaðila og fjölmiðla, um þjónustu og starfsemi öldrunarmála á vegum velferðarsviðs
- Tekur þátt í undirbúningi funda velferðarráðs og situr fundi öldungaráðs
- Háskólamenntun og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og uppbyggingu liðsheildar, stjórnun krefjandi verkefna og umbótavinnu
- Yfirgripsmikil þekking á öldrunarmálum og/eða velferðarþjónustu
- Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu
- Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Hæfni og reynsla í miðlun upplýsinga
- Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma