Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skrifstofustjóri málefna fatlaðs fólks

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi stjórnanda til að stýra skrifstofu málefna fatlaðs fólks. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á málefnum fatlaðs fólks, þrífst á krefjandi verkefnum og hefur metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.

Skrifstofa málefna fatlað fólks ber ábyrgð á þjónustu við fullorðið fatlað fólk í Reykjavík, bæði faglega og fjárhagslega. Frá 1. febrúar sl. varð sú breyting á skipulagi að öll þjónusta fullorðins fatlaðs fólks heyrir beint undir skrifstofuna. Um er að ræða rúmlega 60 starfsstöðvar með um 1700 starfsmenn.

Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn velferðarsviðs og heyrir starfið undir sviðsstjóra.

Umsækjendur verða metnir út frá grunnkröfum varðandi menntun, hæfni og reynslu. Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfnikröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.

Skrifstofa velferðarsviðs er regnbogavottaður starfsstaður og í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Velferðarsvið kallar eftir sakavottorðum í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forysta og fagleg ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík
  • Ber ábyrgð á stefnumótun, heildstæðri þróun, samhæfingu, frumkvæði og nýbreytni í þjónustunni ásamt virku eftirliti með framkvæmd og gæðum í þjónustunni
  • Ábyrgð á rekstri og eftirfylgni með fjármálum málaflokksins í nánu samstarfi við skrifstofu fjármála og reksturs
  • Ber ábyrgð á  skipulagi mannauðsmála á skrifstofu málefna fatlaðs fólks og þeim starfseiningum sem undir hana heyra í nánu samstarfi við mannauðsþjónustu velferðarsviðs
  • Stýrir faglegu starfi og daglegum rekstri skrifstofunnar ásamt samstarfi og samráði við aðrar þjónustueiningar sviðsins, hagsmunasamtök fatlaðs fólks, stofnanir og samstarfsaðila innan og utan borgar
  • Ábyrgð, eftirfylgd og samvinna vegna þjónustusamninga framkvæmdaraðila og samstarfssamninga við félaga- og hagsmunasamtök
  • Ber ábyrgð á almennri upplýsingamiðlun, meðal annars til hagsmunaaðila og fjölmiðla, um þjónustu og starfsemi málefna fatlaðs fólks á vegum velferðarsviðs
  • Tekur þátt í undirbúningi funda velferðarráðs og situr fundi mannréttindaráðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og uppbyggingu liðsheildar, stjórnun krefjandi verkefna og umbótavinnu
  • Yfirgripsmikil þekking á málefnum fatlaðs fólks og velferðarþjónustu sveitarfélaga
  • Reynsla og þekking á fjármálastjórnun og áætlanagerð.
  • Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu
  • Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Hæfni og reynsla í miðlun upplýsinga
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Auglýsing birt16. október 2025
Umsóknarfrestur27. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar