

Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að drífandi einstakling í starf skrifstofustjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður með frábæra skipulags- og samskiptahæfni.
Skrifstofustjóri er lykilaðili í stuðningi við forstöðumann á sviði rekstrar-, mannauðs- og gæðamála. Starfið felur í sér bæði skipulagningu, eftirfylgni og virka þátttöku í daglegum rekstri stöðvarinnar. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í þverfaglegri samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi.
Á Heilsugæslunni Mosfellsumdæmi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi.
-
Stýrir daglegum rekstri skrifstofu og afgreiðslu, m.a. móttöku og símasvörun
-
Skipuleggur vinnufyrirkomulag, vaktir og frí heilsugæslu- og móttökuritara
-
Er forstöðumanni til aðstoðar í rekstri, mannauðs- og gæðamálum
-
Hefur yfirsýn yfir aðgengi, móttöku og flæði skjólstæðinga
-
Annast vinnuskipulag, yfirferð vinnustunda og þátttöku í ráðningum
-
Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna
-
Umsjón með innkaupum, birgðum, skjalavörslu, rafrænum sendingum og frágangi sjúkraskráa
-
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu og tekur þátt í umbótastarfi
-
Sinnir kerfisumsjón á starfsstöð og vinnuaðstöðu starfsfólks
-
Vinnur eftir þörfum einnig í afgreiðslu
-
Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur viðkomandi
-
Háskólamenntun (B.A. eða B.S.) sem nýtist í starfi
-
Reynsla af rekstri, mannauðsmálum og/eða stjórnun æskileg
-
Þekking og áhugi á gæðamálum og umbótastarfi
-
Mjög góð skipulagshæfni og færni í forgangsröðun
-
Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
-
Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
-
Góð tölvukunnátta og kerfislæsi er skilyrði
-
Þekking á sjúkraskrárkerfi er kostur
-
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og ágæt enskukunnátta
Íslenska
Enska










