Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið
Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið
Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið

Skrifstofustjóri fjármálaþjónustu og innkaupa

Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum leiðtoga til að stýra skrifstofu fjármálaþjónustu og innkaupa.

Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar hefur unnið að stefnumótun og umbótum á síðustu árum með það að markmiði að veita skilvirka fjármálaþjónustu, styðja við öfluga framþróun og farsæla ákvarðanatöku í rekstri borgarinnar.

Skrifstofustjóri fjármálaþjónustu og innkaupa ber ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofunnar en þar starfa nú 14 sérfræðingar og er skrifstofustjóri hluti af sviðsstjórn fjármála- og áhættustýringarsviðs.

Við leitum að öflugum leiðtoga með reynslu og þekkingu af rekstri og innkaupum, auk farsællar reynslu af stjórnun, breytingastjórnun og umbótum til að taka þátt í áframhaldandi vegferð sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á þjónustu-, ráðgjafar- og eftirlitshlutverki gagnvart sviðum og stofnunum A-hluta á sviði innkaupa og rekstrar
  • Umsjón og ábyrgð á rekstrarlegu eftirliti með sviðum og stofnunum og veita þeim stuðning og ráðgjöf
  • Ábyrgð á innkaupamálum og fylgja eftir innkaupastefnu borgarinnar
  • Leita leiða til hagkvæmni í innkaupum og rekstri og stuðla að samræmingu og nýsköpun
  • Ráðgefandi hlutverk við gerð útboðsgagna og rekstur útboðs- og innkaupaferla
  • Ábyrgð á samræmdu mælaborði fjárhags- og rekstrarupplýsinga fyrir stjórnendur og sérfræðinga
  • Stýra daglegum rekstri skrifstofunnar og stuðla að jákvæðu starfsumhverfi og góðri liðsheild
  • Ábyrgð á stefnumótun, ferlavinnu og umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla á sviði innkaupamála
  • Yfirgripsmikil reynsla af rekstri
  • Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu liðsheildar
  • Leiðtogahæfileikar og áhugi á að leiða breytingar og umbætur
  • Greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Framsýni og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Framúrskrandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun
  • Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta B2 skv. evrópska tungumálarammanum
Auglýsing birt17. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar