
Lögfræðingur Náttúruverndarstofnunar – tímabundin afleysing til eins árs
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar vegna afleysingar tímabundið starf lögfræðings til eins árs. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi með áhuga á náttúruvernd, stjórnsýslu og umhverfismálum. Náttúruverndarstofnun er með 15 starfsstöðvar víðs vegar um landið og eru höfuðstöðvar stofnunarinnar á Hvolsvelli. Starfsmaður getur valið sér starfsstöð úr þeim hópi.
Starfið felur í sér fjölbreytt lögfræðileg verkefni á starfssviði stofnunarinnar einkum vinnu við stjórnsýslumál á sviði náttúruverndar, veiðistjórnunar, samninga um atvinnustarfsemi innan þjóðgarða, ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk, umsagnir, leyfismál og úrlausn annarra lögfræðilegra álitaefna.
Lögfræðingurinn mun vinna náið með sérfræðingum stofnunarinnar og taka þátt í samstarfi við ráðuneyti, aðrar stofnanir, sveitarfélög, hagsmunaaðila og almenning. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir lögfræðing sem vill leggja sitt af mörkum til verndar íslenskrar náttúru og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði opinberrar stjórnsýslu.
- Vinna við stjórnsýslumál, ákvarðanir og málsmeðferð
- Rýni og undirbúningur leyfa, umsagna og annarra stjórnsýslugagna
- Umsagnir um þingmál, reglugerðir og mál til ráðuneyta
- Umsagnir og gagnaöflun vegna stjórnsýslukæra
- Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks stofnunarinnar
- Meðferð beiðna um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og upplýsingalögum
- Þátttaka í gerð verklags, umbótaverkefnum og samræmingu málsmeðferðar
- Greining á lögum, reglugerðum og eftir atvikum EES reglugerðum sem varða starfssvið stofnunarinnar
- Samskipti við ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög, hagsmunaaðila og almenning
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
- Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking á umhverfisrétti, náttúruvernd, stjórnsýslurétti eða sambærilegum málaflokkum er kostur
- Reynsla af lögfræðilegri ráðgjöf, málsmeðferð eða gerð stjórnsýsluákvarðana er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Skipulögð, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun
- Stafræn hæfni og vilji til að taka þátt í þróun og umbótum í starfi
Íslenska
Enska