Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Landvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs - vetrartímabil

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins og fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana. 

Starfssvæði suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Fjallsárlóni að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Helsta starfsstöð landvarða er við Jökulsárlón. Veturinn er annasamur á suðaustursvæði vegna íshella- og jöklaferðamennsku.

Um er að ræða tímabundið starf til 30. apríl 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu 
  • Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.  
  • Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða og umhirða svæða. 
  • Smærri framkvæmdir og önnur tilfallandi verkefni.  
  • Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum, atvinnustarfsemi og viðburðum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Landvarðaréttindi, gild ökuréttindi  
  • Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt. 
  • Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir. 
  • Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki.  
  • Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi. 
  • Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða, t.d. náttúrutúlkun er kostur. 
  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur. 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur. 
  • Þjálfun í jöklaleiðsögn er kostur, t.d. jöklaleiðsögn 1-3 eða sambærilegt nám.  
Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnajökull Öræfi , 785 Öræfi
Vatnajökull í Lóni , 781 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar