Hurðaskellir ehf.
Hurðaskellir ehf.
Hurðaskellir ehf.

Skrifstofustjóri

Hurðaskellir ehf óskar eftir að ráða skipulagðan, jákvæðan og ábyrgan einstakling í fjölbreytt starf skrifstofustjóra. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur góða reynslu af bókhaldi og fjármálum, vill vinna nálægt rekstri og hefur áhuga á að þróast áfram í breiðu og sjálfstæðu hlutverki.

Viðkomandi kemur að daglegum rekstri fyrirtækisins, bókhaldi, fjármálum og greiningum í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, stjórnendur og samstarfsfólk Hurðaskellis.

Hjá Hurðaskellir er öryggi, gæði og traust þjónusta í forgrunni. Hlutverkið er breitt og hentar einstaklingi sem kann vel við sig í smærra teymi, er tilbúinn að taka ábyrgð og hefur jákvætt viðhorf til breytinga, umbóta og fjölbreyttra verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri skrifstofu.
  • Umsjón með daglegu bókhaldi og fjármálatengdum verkefnum.
  • Vinna við mánaðaruppgjör, afstemmingar og fjárhagslegar skýrslur.
  • Reikningagerð, viðskiptamannabókhald og lánadrottnabókhald.
  • Aðstoð við áætlanagerð, fjárhags- og rekstrargreiningar.
  • Þátttaka í innri úttektum, eftirfylgni og regluvörslu.
  • Aðstoð við launatengd verkefni og utanumhald kostnaðar.
  • Umsjón og eftirfylgni með skattamálum, innflutningi og tengdum verkefnum.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum, ferlaþróun og innleiðingu fjármálakerfa.
  • Samskipti og samstarf við birgja erlendis.
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast fjármálum, rekstri og skrifstofuumsjón.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði fjármála, bókhalds, viðskiptafræði eða sambærileg reynsla.
  • Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og almennum fjármálaverkefnum.
  • Góð þekking á bókhaldsreglum og íslensku rekstrarumhverfi.
  • Góð færni í Excel og almennri tölvunotkun.
  • Reynsla af fjármála- eða bókhaldskerfum er kostur, Þá einna helst Dk.
  • Góð greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og rík ábyrgðartilfinning.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti. Skemmir ekki fyrir ef einstaklingur er með hæfni í pólsku.
  • Jákvætt viðhorf til breytinga, þróunar og fjölbreyttra verkefna.
Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Selfoss V , 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar