

Skrifstofustjóri (Manufacturing Operations Coordinator)
Kerecis leitast eftir að ráða skipulagðan, jákvæðan og ábyrgan einstakling til að sinna fjölbreyttu starfi skrifstofustjóra á Ísafirði. Skrifstofustjóri sér til þess að hjólin snúist á skrifstofum Kerecis á Ísafirði. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni
-Daglegur rekstur skrifstofu, þ.á.m. innkaup
-Hefur umsjón með starfsfólki í ræstingum og sér til þess að kröfum um hreinlæti sé mætt
-Hefur umsjón með bókunum á starfsmannaíbúðum
-Símsvörun, svörun tölvupósta og móttaka gesta
-Samskipti við birgja og aðra þjónustuaðila
-Aðstoð við móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna
-Halda utan um starfsmannaskrár
-Tryggir að farið sé eftir verklagsreglum, stefnum og öryggiskröfum skrifstofu
Menntunar- og hæfniskröfur
-Stúdentspróf
-Góð enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
-Góð íslenskukunnátta er kostur
-Góð tölvu- og tæknileg færni
-Nákvæmni og góð skipulagshæfni
-Jákvæð viðhorf, drifkraftur og gott vinnusiðferði
-Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi
Stúdentspróf
Enska
Íslenska
