
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, er félag í eigu ríkisins sem hefur það meginmarkmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.
Félagið var stofnað árið 2006 með það markmið að hafa umsjón með og selja þær eignir sem Bandaríkin afhentu Íslandi við brottför varnarliðsins. Árið 2019 seldust síðustu húseignirnar sem félagið hafði umsjón með. Þar með hófst nýr kafli í sögu félagsins en sumarið 2019 undirrituðu íslenska ríkið, Isavia, Reykjanesbær og Suðurnesjabær viljayfirlýsingu um að vinna saman að heildstæðri stefnu og framtíðarsýn fyrir landsvæðin í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Kjarnaverkefni Kadeco er nú að leiða þetta samstarf um að auka virði svæðisins með skipulagningu nýs þróunarsvæðis við flugvöllinn. Árið 2021 stóð Kadeco fyrir alþjóðlegri samkeppni um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. Mikill áhugi var á samkeppnisútboðinu og alls bárust umsóknir frá 25 fjölþjóðlegum teymum, en það var alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP sem varð hlutskörpust. Kadeco vinnur nú áfram að gerð þróunaráætlunar í samstarfi við KCAP.
Skrifstofustjóri
Kadeco leitar að skrifstofustjóra í 50% starf.
Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með skrifstofunni okkar
og sér um að allt gangi smurt fyrir sig.
Við erum að leita að lífsglöðum vinnufélaga til að taka þátt
í spennandi verkefnum og hlúa að góðum starfsanda, með
starfsstöð á skrifstofunni okkar á Ásbrú.
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af bókhaldi ( DK)
Reynsla af skýrslu- og áætlanagerð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Framúrskarandi samskiptahæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Bókun reikninga
Móttaka gesta og erlendra ráðgjafa
Símsvörun
Innkaup
Ýmiskonar stoðvinna á skrifstofu
Samskipti við lóðarhafa og aðra viðskiptiavini
Skjalastjórnun
Auglýsing birt8. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarbraut 946, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðDKSamviskusemiSkýrslur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

Fjármála- og rekstrarstjóri
Dropp

Lagerstjóri og lagerstarfsmaður hjá Ormsson
Ormsson ehf

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Sérfræðingur í innheimtu og greiðslum
BYKO

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands