Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð

Skemmtilegt sumarstarf í búsetukjarna

Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?

Við í Lönguhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu og framsækni starfsfólki til liðs við okkur. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum. Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.

Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum).

Um sumarstarf er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfað er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn
  • Veita íbúum stuðning við allar athafnir dagsleg lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 20 ára aldurstakmark
  • Góð almenn menntun
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
  • Almenn tölvukunnátta
  • Tala og skilja íslensku
  • Hreint sakavottorð
  • Bílpróf
Auglýsing birt4. apríl 2025
Umsóknarfrestur17. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skálahlíð 1-15 1R, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar