Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Skemmtilegt hlutastarf í búsetukjarna

Erum við að leita að þér?

Við leitum eftir drífandi og líflegum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Mjög skemmtilegt og gefandi starfsumhverfi.

Við í Þverholti 19 í Mosfellsbæ leitum eftir öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur. Starfsmenn veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og hjálp til sjálfshjálpar. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.

Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn sem og þjónustu- og starfsáætlunum. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.

Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.

Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld- og helgarvöktum). Um hlutastarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.

Menntunar- og hæfniskröfur

Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur

Þjónustulund og jákvæðni í starfi

Hæfni í mannlegum samskiptum

Framtaksemi og samviskusemi

Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi

Hreint sakavottorð

Aldursskilyrði er 20 ár

Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Auglýsing birt22. október 2024
Umsóknarfrestur5. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Þverholt 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar