Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sjúkraliði á heilsugæsluna í Laugarási

Við leitum að öflugum sjúkraliða til að starfa með okkur á heilsugæslunni í Laugarási við heimahjúkrun og almenn heilsugæslustörf. Um er að ræða 60% stöðu sem veitist frá 1. september.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felst í almennri hjúkrun, móttöku á heilsugæslu, heimahjúkrun og annað sem kemur að heilsugæsluvinnu.
  • Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vottorð um sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun
  • Starfsleyfi landlæknis
  • Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing stofnuð6. júní 2024
Umsóknarfrestur15. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Laugarás 167381, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar