Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sjúkraliðar með viðbótardiplóma - Hrafnista Nesvellir

Hrafnista Nesvellir óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum sjúkraliða með viðbótardiplóma. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða. Markmið starfsins er að veita íbúum hjúkrun í samræmi við sýn og stefnu Hrafnistu.
Sjúkraliðar með viðbótardiplóma standa vaktir með hjúkrunarfræðingum þar sem hæfni þeirra og færni er nýtt til fulls miðað við reglugerð.Starfshlutfall er samkomulagsatriði og kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vaktstjórn
  • Sinnir verkefnum m.v. núverandi reglugerð sjúkraliða með viðbótardiplóma
  • Hefur umsjón með ákveðnum verkefnum
  • Leiðbeinir og styður við almennt starfsfólk sem sinnir umönnun íbúa, sjúkraliðum og félagsliðum
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sjúkraliða og viðbótardiplóma
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
Auglýsing birt26. janúar 2026
Umsóknarfrestur8. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar