Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Víðivellir

Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara/þroskaþjálfa í fullt starf, starfið er laust nú þegar eða með samkomulagi.

Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun. Auk þess er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.

Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir þar með talið að skipuleggja sérkennslu viðkomandi í samvinnu við sérkennslustjóra og deildastjóra.
  • Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir það barn/börn sem hann er með í stuðning
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn þess barns/barna sem hann er með í stuðning
  • Er leiðbeinandi fyrir annað starfsfólk varðandi stuðning við nemendur með sérþarfir
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni sem sérkennslustjóri og eða yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Fáist ekki sérkennari/þroskaþjálfi til starfsins, kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir leikskólastjóri, svanhildurbi@hafnarfjordur.is og Eyrún Edvardsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, eyrune@hafnarfjordur.is í síma 555-3599.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ eða Þroskaþjálfafélag Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 3.október 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt23. september 2024
Umsóknarfrestur3. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Miðvangur 39, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar