
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Sérfræðingur óskast
Óskað er eftir sérfræðingi til að vinna með börnum í 80-100% starf frá 15. janúar 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Sérfræðingur vinnur í stoðþjónustuteymi skólans og veitir m.a. leiðsögn og ráðgjöf til foreldra og annarra starfsmanna. Hann þjálfar og styður við nám nemenda, í samstarfi við umsjónarkennara, er þurfa á sértækum stuðningi að halda í skólastarfinu og daglegum athöfnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sérfræðingur vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra og umsjónarkennara. Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra
- Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, stuðningsáætlunum, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði skólamála s.s. þroskaþjálfafræða, iðjuþjálfunar, uppeldis- og menntunarfræða eða kennslufræða
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Áhugi fyrir teymiskennslu og teymisvinnu
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt22. desember 2023
Umsóknarfrestur8. janúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Heiðarstekk 10
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHugmyndaauðgiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Iðjuþjálfi óskast til starfa
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir