Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Sérfræðingur - losun Íslands

Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi losunarbókhalds.

Megin verkefni sérfræðingsins verða söfnun gagna frá stofnunum og fyrirtækjum, utanumhald og útreikningar á losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna, sem og þátttaka í úttektum á losunarbókhaldi og vinnu við regluverk. Í starfinu felst jafnframt greining á þróun losunartalna og túlkun bókhaldsins. Sérfræðingurinn mun taka þátt í miðlun upplýsinga um losunarbókhaldið og loftslagsmál almennt, bæði til hagsmunaaðila og almennings. Sérfræðingurinn mun starfa í öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði verkfræði, náttúruvísinda eða sambærilegra greina með áherslu á úrvinnslu gagna
Þekking og/eða reynsla af loftgæða- og/eða loftslagsmálum
Talnagleggni, greiningarhæfni og gott vald á Excel
Hæfni til miðlunar og framsetningar efnis á aðgengilegan hátt
Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostu
Helstu verkefni og ábyrgð
Söfnun gagna frá stofnunum og fyrirtækjum
Utanumhald og útreikningar á losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna
Þátttaka í úttektum á losunarbókhaldi
Stjórnsýsluverkefni
Miðlun upplýsinga um losunarbókhaldið og loftslagsmál almennt, bæði til hagsmunaaðila og almennings
Samskipti við evrópskar og alþjóðlegar stofnani
Auglýsing birt15. nóvember 2021
Umsóknarfrestur29. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar