Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í uppgjörum

Hafnarfjarðarbær óskar eftir því að ráða sérfræðing í uppgjörum inn í bókhalds- og uppgjörsdeild á fjármálasviði. Sérfræðingur í uppgjörum vinnur uppgjör í samvinnu við deildarstjóra bókhalds- og uppgjörsdeildar og sviðsstjóra fjármálasviðs.

Um er að ræða nýtt og spennandi starf innan bókhalds- og uppgjörsdeildar og mun viðkomandi bera ábyrgð á þróun uppgjörsvinnu hjá sveitarfélaginu. Í deildinni vinna þrír starfsmenn auk deildarstjóra. Bókhalds- og uppgjörsdeild er ein fimm deilda inn á fjármálasviði, hinar eru fjárreiðudeild, hagdeild, launadeild og innkaupadeild. Á fjármálasviði starfa 17 starfsmenn.

Helstu verkefni eru:

  • að hafa umsjón, eftirlit og ábyrgð með uppgjörum bæjarins
  • að hafa umsjón með frágangi við ársfjórðungs-, árshluta- og ársuppgjör bæjarins
  • að hafa umsjón með uppgjörskerfi bæjarins, Case Ware
  • að hafa umsjón með skýrslugerð og greinargerðum með uppgjörum s.s. ársskýrslu og sjálfbærniskýrslu
  • að vinna ýmsa greiningarvinnu í tengslum við uppgjör bæjarins
  • að vera ráðgjafandi í tengslum við uppgjörsmál
  • önnur verkefni í tengslum við uppgjör sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði og framhaldsmenntun í endurskoðun
  • Reynsla af gerð ársreikninga og samstæðureikninga er skilyrði
  • Reynsla af gerð ársreikninga sveitarfélaga er kostur
  • Þekking og reynsla af bókhaldi er skilyrði
  • Framúrskarandi tölvukunnátta, þ.m.t. kunnátta á fjárhagskerfi, Excel, Power Bi
  • Þekking á uppgjörskerfinu Case Ware er kostur
  • Góð þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil er skilyrði
  • Þekking á kröfum um sjálfbærniupplýsingar í ársskýrslum er kostur
  • Greiningarhæfni, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni, þjónustulund og lausnamiðuð hugsun
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Geta til að vinna undir álagi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Andri Berg Haraldsson, deildarstjóri bókhalds- og uppgjörsdeildar, [email protected]

Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2024.

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.


Auglýsing birt21. mars 2024
Umsóknarfrestur7. apríl 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar