Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í teymi auðlindastýringar jarðvarmans

Ertu til í að móta framtíð jarðhitans á Íslandi

Hlutverk okkar hjá Landsvirkjun er að hámarka nýtingu þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem okkur er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum sérfræðingi til að ganga til liðs við okkur í þeirri vegferð, í öflugu teymi reksturs og auðlinda á sviði vinds og jarðvarma.

Helstu verkefni felast í rekstri og vöktun jarðvarmasvæða, auðlindastýringu og ýmsum rannsóknum og þróun, m.a. á svið forðafræði og aðkomu að borverkefnum.

Hæfni og reynsla:

  • háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í verkfræði, jarðfræði eða skyldum greinum
  • reynsla af verkefnastjórnun
  • reynsla úr jarðhitageiranum kostur
  • reynsla eða áhugi á gagnadrifinni nálgun og nýtingu tækni, t.d. með gervigreind
  • lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi
  • sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfileikar
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar