
Leiðandi sérfræðingur á Heilbrigðisþjónustusviði
Vilt þú vinna í spennandi og síbreytilegu umhverfi þar sem þú tekur þátt í að þróa og efla íslenska heilbrigðisþjónustu?
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.
Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað, fagmennsku og liðsheild. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
Sjúkratryggingar auglýsa starf leiðandi sérfræðings á Heilbrigðisþjónustusviði. Heilbrigðisþjónustusvið sér um framkvæmd samninga vegna heilbrigðisþjónustu, s.s. vegna þjónustu sjúkrastofnana, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, sjúkraflutninga o.fl. Í undirbúningi eru stór og mikilvæg verkefni tengd þróun heilbrigðisþjónustu, þ.m.t. þarfa- og kostnaðargreiningar vegna lykilsamninga sem Sjúkratryggingar gera.
- Almenn verkefnastjórnun
- Úttektir og skýrslugerð vegna framkvæmda samninga
- Þátttaka í þarfa- og kostnaðargreiningu heilbrigðisþjónustu
- Þátttaka í mótun stafrænnar þjónustu
- Samstarf við aðrar stofnanir og veitendur heilbrigðisþjónustu
- Leiðbeiningar og ráðgjöf til starfsfólks og viðskiptavina
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði hagfræði, heilsuhagfræði, verkfræði eða viðskiptafræði er kostur
- Reynsla af eða þekking á heilbrigðismálum er kostur
- Reynsla af stjórnun/umsjón verkefna er æskileg
- Reynsla af gagnavinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga er æskileg
- Reynsla af vinnu með gervigreind er æskileg
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
- Lipurð í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, metnaður og vönduð vinnubrögð
- Geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi













