
Leiðandi sérfræðingur í stafrænni vegferð
Sjúkratryggingar leita að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til að leiða þróun og innleiðingu stafrænna lausna sem bæta þjónustu og auka skilvirkni í íslenska heilbrigðiskerfinu. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun í opinberri þjónustu og reynslu af því að stýra fjölbreyttum verkefnum með markvissum og faglegum hætti.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.
Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað, fagmennsku og liðsheild. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
- Leiða þróun og innleiðingu stafrænna lausna í samræmi við stefnu stofnunarinnar
- Stýra verkefnum frá upphafi til enda, þar með talið framvindueftirliti og áhættustjórnun
- Greina viðskiptaþarfir og skilgreina tæknilegar lausnir í samstarfi við hagsmunaaðila
- Tryggja faglega framkvæmd verkefna með öflugri gæðastjórnun og skilvirkri samvinnu
- Viðhalda virku samráði við þjónustuveitendur, notendur og aðra lykilaðila
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði, eða á sambærilegu sviði
- Að lágmarki þriggja ára reynsla af sambærilegu starfi
- Reynsla af vörustjórnun í hugbúnaðarþróun
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnunaraðferðum (t.d. Agile, PRINCE2, PMP)
- IPMA C- eða D-vottun er kostur
- Kostur ef umsækjandi hefur þekkingu og / eða reynslu af innleiðingu gervigreindarlausna (t.d. málmódel, sjálfvirk greining, skjalavinnsla eða þjónustubottar) í opinberum kerfum eða heilbrigðisgeiranum
- Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af hugbúnaðarverkefnum innan heilbrigðisgeirans
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Leiðtogahæfni, frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi samskiptafærni, þjónustulund og lausnamiðuð nálgun

