
Sérfræðingur í upplýsingaöflun og greiningum
Viltu taka þátt í að móta rekstrarumhverfi orku- og veitustarfsemi á Íslandi á grunni góðra gagna og upplýsandi greininga?
Samorka óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem býr yfir miklu frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til að sinna mikilvægum og spennandi verkefnum á sviði greininga tengdum orku- og veitustarfsemi. Um er að ræða skemmtilegt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga og getu til að safna saman og greina hagtölur og ýmsar áhugaverðar upplýsingar sem varða orku- og veitustarfsemi á Íslandi og í nágrannalöndum okkar og miðla þeim á skilvirkan hátt. Í starfinu felast tækifæri til að vinna náið með ýmsum sérfræðingum aðildarfyrirtækja Samorku auk sérfræðinga annarra samtaka í Húsi atvinnulífsins.
Helstu verkefni:
- Söfnun, greining og miðlun upplýsinga sem varða rekstur orku og veitustarfsemi, þ.m.t. umhverfis- og loftslagsmál.
- Greining á áhrifum breytinga á rekstrarumhverfi orku- og veitufyrirtækja.
- Greining á efnahagslegri þýðingu orku- og veitustarfsemi.
- Skýr og greinargóð framsetning gagna og upplýsinga.
- Þátttaka í skipulagningu og umsjón með framkvæmd funda og ráðstefna um málefni orku- og veitugeirans.
- Þátttaka og faglegur stuðningur við ýmis verkefni sem unnið er að hverju sinni.
- Eftirfylgni með nýrri stefnu samtakanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun s.s á sviði hagfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýst getur í starfi.
- Hæfni og áhugi á að greina upplýsingar og hagstærðir sem varða orku- og veitustarfsemi hér á landi og í nágrannalöndum.
- Færni í markvissri framsetningu upplýsinga jafnt skriflega, myndrænt og munnlega.
- Jákvæðni og mikil samskipta- og starfshæfni.
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Reynsla af starfi í orku- og/eða veitustarfsemi er kostur sem og reynsla af störfum við hagsmunagæslu.
- Þekking á Excel, Powerpoint eða öðrum forritum til kynninga.
Um Samorku:
Hjá Samorku starfar lítill en metnaðarfullur og samhentur hópur starfsmanna með brennandi áhuga á orku- og veitumálum. Aðildarfélög Samorku eru um 50 orku- og veitufyrirtæki um allt land og eru samtökin aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Stefna Samorku er að Ísland verði áfram leiðandi og fyrirmynd annarra þjóða í nýtingu grænnar orku. Við vinnum í átt að markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutleysi og að Ísland verði knúið og kynt með grænni orku sem unnin er með sjálfbærum og ábyrgum hætti innanlands.
Samorka er atvinnugreinasamtök aðildarfyrirtækja og faglegur vettvangur þeirra í félags-, kynningar- og fræðslumálum. Það eru spennandi tímar í orku- og veitumálum við að tryggja áfram heilnæmt drykkjarvatn, umhverfisvænar fráveitur, heitt vatn og rafmagn fyrir heimilin, atvinnulífið og orkuskiptin.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2025. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]). Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.













