Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Verkefnis- og hönnunarstjóri

Vilt þú taka þátt í að hanna og undirbúa samgöngumannvirki framtíðarinnar?


Hönnunardeild Vegagerðarinnar annast undirbúning fjölbreyttra verkefna um allt land, allt frá hugmynd að framkvæmd. Við leitum að verkefnis- og hönnunarstjórum sem hafa þekkingu og reynslu af hönnun samgöngumannvirkja og almennri verkefnisstjórn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • hönnunar- og verkefnisstjórn frumdraga, for- og verkhönnunar 
  • kaup á ráðgjöf og rannsóknum
  • sérfræðiráðgjöf 
  • samstarf þvert á önnur svið, deildir og svæði Vegagerðarinnar
  • gerð leiðbeininga um hönnun og undirbúning  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt.
  • Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja
  • Reynsla af verkefnisstjórn æskileg
  • Sérhæfing eða reynsla á einhverjum af eftirfarandi sviðum æskileg: 
    • gerð verklýsinga
    • jarðtækni
    • burðarþolshönnun vega
    • vegbúnaður
    • umferðartækni
    • umferðarhávaði
    • gerð hönnunarleiðbeininga
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu 
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli kostur
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgarbraut 66, 310 Borgarnes
Suðurhrauni 3, 210 Garðabær
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar