Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Verkefnastjóri hjá nýframkvæmdum

Taktu þátt í sókn til grænni framtíðar

Framtíðarsýn okkar um sjálfbæran heim byggir á orkuöflun sem styður orkuskipti og kolefnishlutleysi. Landsvirkjun vinnur að mikilvægum virkjunar- og innviðaverkefnum og er í fararbroddi við þróun endurnýjanlegrar orku – með vatnsafli, jarðvarma eða vindi.

Við leitum að verkefnastjóra til að ganga til liðs við nýframkvæmdadeild, sem sér um virkjunarframkvæmdir frá útboðshönnun til afhentrar lausnar – með fagmennsku, nýsköpun og ábyrgð að leiðarljósi. Sem verkefnastjóri nýframkvæmda kemur þú að fjölbreyttum verkefnum, þar sem áhersla er lögð á undirbúning og eftirfylgni verklegra framkvæmda við nýjar virkjanir og tengda innviði.

Þú munt vinna í þverfaglegu teymi sem samhæfir verkþætti og heldur utan um áætlanagerð, kostnað, tíma og gæði, í samstarfi við innri og ytri hagsmunaaðila.

Hæfni og reynsla:

  • háskólamenntun á sviði byggingarverkfræði
  • 2-5 ára reynsla af verkeftirliti og/eða verkefnastýringu verklegra framkvæmda
  • reynsla af kostnaðargát og áætlanagerð er kostur
  • frumkvæði, öguð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar