
Hljóðverkfræðingur M.Sc.
Trivium ráðgjöf leitar að jákvæðum og metnaðarfullum verkfræðingi með M.Sc. próf í hljóðverkfræði. Ekki er gerð krafa um starfsreynslu en mikil áhersla lögð á að umsækjandi geti unnið sjálfstætt í verkefnum félagsins.
Umsækjandi skal vera góður í mannlegum samskiptum, vel ritfær, hafa gott vald á íslensku, a.m.k. einu Norðurlandamáli og ensku.
Trivium ráðgjöf er í samstarfi við VSÓ ráðgjöf og er skrifstofa félagsins í Borgartúni 20 í Reykjavík.
Upplýsingar um starfið veitir Ólafur Hjálmarsson verkfræðingur (netfang: [email protected]).
Umsóknum skal fylgja stutt lýsing á náms- og starfsferli og skal hún send með umsókn með tölvupósti á netfangið [email protected] fyrir 15. júlí 2025. Öllum umsóknum og fyrirspurnum verður svarað. Fyllsta trúnaðar er gætt.
Hljóðhönnun, hljóðmælingar og hljóðráðgjöf
Hljóðverkfræði M.Sc.
Laun skv. samkomulagi, mötuneyti og lifandi vinnustaður











