Verkís
Verkís
Verkís

Verkefnastjóri tæknikerfa mannvirkja

Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að leiða hönnunarteymi tæknikerfa s.s. lagna- og loftræsikerfi í stórum verkefnum. Verkefnastjóri hönnunarteymis leiðir verkefnahóp og ber jafnframt ábyrgð á úrlausn flókinna verkefna, samræmingu við verkkaupa, skipulagningu verkefnavinnu og samvinnu við önnur teymi.

Starfið tilheyrir lagna- og loftræsikerfahópi á Byggingasviði. Verkefni sviðsins felast í hönnun flókinna mannvirkja, s.s. sjúkrahúsa, íþróttahúsa, flugstöðvabygginga, opinberra bygginga og skóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjóri tæknikerfa í flóknum mannvirkjum á Íslandi og erlendis
  • Leiðir verkefnahóp og ber ábyrgð á samræmingu tæknikerfa
  • Sinnir samskiptum við viðskiptivini varðandi faglega úrlausn verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í véla- eða byggingaverkfræði, eða véla- eða byggingatæknifræði
  • Starfsreynsla við verkefnastjórnun
  • Þekking og reynsla af hönnun tæknikerfa í mannvirkjum er kostur
  • Mjög góð færni í íslensku í tali og rituðu máli
  • Góðir samskiptahæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar