LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Sérfræðingur í tækniþjónustu

Viltu taka þátt í að bæta og styðja tæknilega innviði hjá stærsta lífeyrissjóði landsins? Hefur þú reynslu af stýrikerfum, netkerfum og þjónustu við starfsfólk?

LSR leitar að hæfileikaríkum tæknisérfræðingi til að annast notendaþjónustu gagnvart starfsfólki sjóðsins. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og færni í umsjón stýri- og netkerfa, reynslu af notendaþjónustu og vilja til að læra og þróast í starfi.

Sérfræðingur í tækniþjónustu verður hluti af öflugu teymi stafrænnar þjónustu LSR sem vinnur að stöðugri uppbyggingu tækniinnviða í samræmi við stefnu sjóðsins um aukna áherslu á stafrænar lausnir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tæknileg notendaþjónusta við starfsfólk LSR.  

  • Náin samvinna við upplýsingatækniteymi sjóðsins auk þróunar- og hýsingaraðila.  

  • Þátttaka í upplýsingaöryggisverkefnum. 

  • Greining og lausn helstu vandamála í kerfum og netbúnaði. 

  • Uppsetning og viðhald á fartölvum og hugbúnaði. 

  • Dagleg umsjón og eftirlit með aðgangsstjórnun upplýsingatæknikerfa. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af notendaþjónustu og tæknilegum stuðningi. 

  • Góðir samskiptahæfileikar og vilji til að læra og þróast í starfinu. 

  • Góðir skipulagshæfileikar. 

  • Skilningur á grunnatriðum í upplýsingaöryggi og netöryggi. 

  • Hæfni til að greina og leysa vandamál í kerfum og netbúnaði. 

Auglýsing birt16. ágúst 2024
Umsóknarfrestur2. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar