Míla hf
Míla hf
Míla hf

Sérfræðingur í rekstri upplýsingatæknikerfa

Ef þú hefur brennandi áhuga á rekstri net- og upplýsingatæknikerfa, langar til að vinna í spennandi umhverfi og styðja við rekstur mikilvægra innviða þá viljum við heyra frá þér.

Starfið felur í sér að taka þátt í að þróa og reka upplýsingatækniumhverfi Mílu, bæði net og kerfislega, ásamt því að veita notendum tæknilega aðstoð. Þá felur starfið einnig í sér greiningu og viðbrögð við öryggistilkynningum úr eftirlitskerfum.

Við leitum að aðila sem hugsar í lausunum, er sífellt að leita leiða til að bæta umhverfi, rekstur og verkferla. Viðkomandi hefur áhrif á þróun starfsins og hvernig verkefni rekstrar verða unnin.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita almenna notendaþjónustu og tæknilega aðstoð
  • Daglegur rekstur upplýsingatæknikerfa
  • Samskipti við birgja og samstarfsaðila
  • Innleiðing og uppsetning nýrra kerfa og lausna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bakgrunnur sem kerfisstjóri er kostur
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Frumkvæði, fagmennska og lausnamiðuð nálgun
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Jákvætt viðhorf og vilji til að skapa góða liðsheild
  • Geta og þekking af verkefnastjórnun er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
  • 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
  • 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
  • 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
  • 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
  • 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og leikherbergi með billiard-borði
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar