
TACTICA
TACTICA er upplýsingatæknifyrirtæki á íslenskum markaði í örum vexti sem sinnir fjölbreyttum störfum í tölvu- og vefþjónustu á fyrirtækjamarkaði.
Markmið TACTICA eru meðal annars að vera alhliða þjónustuaðili sinna viðskiptavina og veita þeim persónusniðna og góða þjónustu. TACTICA rekur hysingar.is sem er meðal stærstu hýsingaraðila á Íslandi og hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna.
Félagið var stofnað 2012 og höfum frá upphafi kappkostað að hafa vinalegt og gott starfsumhverfi.

Leitum að kerfisstjóra í vef- og hýsingardeild
TACTICA leitar að metnaðarfullum kerfsisstjóra sem hefur sterka þekkingu á WordPress og PHP ásamt góðum skilningi á rekstri vefþjóna. Starfið snýst um þróun og viðhald WordPress vefja og felur einnig í sér daglega umsjón og eftirlit með hýsingarumhverfi í samstarfi við rekstrarsvið.
Þetta er fjölbreytt starf þar sem við sinnum öllu frá forritun og bilanaleit til öryggismála og samskipta við viðskiptavini.
Ef þú ert einhver sem brennur fyrir veftækni og er að leita að starfi þar sem þú færð tækifæri til að læra eitthvað nýtt í hverri viku þá viljum við heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
-
WordPress og forritun:
- Viðhald og úrræðaleit á WordPress vefjum (þemu, viðbætur, sérsniðin virkni)
- PHP forritun og bilanaleit
- Vírushreinsa og vernda WordPress vefi
- Greining á orsökum hægagangs á vefjum
Umsjón með hýsingarumhverfi:
- Eftirlit með öryggi og afköstum vefþjóna (Linux)
- Umsjón með afritunum, eldveggjum og minnisúthlutun
- Eftirlit með DNS, SSL/TLS vottorðum og tölvupóstþjónustu (SPF/DKIM/DMARC)
- Viðbrögð við netárásum og óæskilegum scraping
- Þátttaka í sjálfvirkni á innviðaverkefnum (Terraform, Ansible eða sambærilegt)
- Flutningur vefja á milli þjóna
Annað:
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á PHP og MySQL
- Sterk reynsla af WordPress — þemu, viðbótum og sérsniðinni þróun
- Góður skilningur á Linux vefþjónum og hýsingarumhverfi
- Þekking á cPanel og/eða Plesk er kostur
- Áhugi á sjálfvirkniverkfærum (Terraform, Ansible eða sambærilegt)
- Þekking á HTTP caching (Varnish, Redis, OPcache) er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnudögum (hybrid fyrirkomulag)
- Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
- Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Farsímaáskrift og nettenging
- Aðgengi að heitum mat í hádeginu
- Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing birt27. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
BakendaforritunLinuxPHPSQLVefforritun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

AI Solutions Engineer
atNorth

Graphics Programmer
Fenris Creations

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Senior Software Engineer, Simulation Platform
Aveo ehf.

Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun
Dómstólasýslan

Gagnaforritari
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Infrastructure Engineer
Skývafnir

Senior Infrastructure Engineer
Fenris Creations

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
SnerpaPower

Leitum að kerfisstjóra
TACTICA