Five Degrees ehf.
Five Degrees ehf.
Five Degrees ehf.

Sérfræðingur í kerfisstjórn og kerfisöryggi

Ert þú skipulagður og öflugur einstaklingur með brennandi áhuga á upplýsingatækni, rekstri og öryggi tölvukerfa, og hefur reynslu af kerfisstjórn og notendaþjónustu? Þá erum við hjá Five Degrees að leita að þér. Starfið snýr að daglegum rekstri, svo sem viðhaldi, eftirliti, innkaupum, uppsetningum og notendaþjónustu. Viðkomandi tryggir að tölvuumhverfi, netkerfi og búnaður starfsfólks sé öruggur, uppfærður og hagkvæmur í rekstri.

Umhverfi okkar byggir að stærstum hluta á lausnum frá Microsoft, eins og Outlook, Teams, Azure, SharePoint, Active Directory og Azure DevOps. Einnig rekum við kerfi á borð við Jira, Confluence, Claude og ProGet. Framtíðarsýn okkar er að færa sem flestar þjónustur í skýjalausnir og sjálfvirknivæða það sem hægt er, meðal annars með Intune, Self-Service Portals, Access Reviews og sjálfvirkum skýrslum.

Hjá Five Degrees höfum við metnað fyrir því sem við gerum og viljum ávallt standast kröfur viðskiptavina okkar með góðum ferlum. Skjölun og skipulögð vinnubrögð skipta okkur miklu máli, bæði í rekstri og við þróun hugbúnaðar. Rekstraröryggi, stýring aðgangsmála, rekjanleiki breytinga og öryggisvarnir eru okkur ofarlega í huga.

Þessu hlutverki fylgir ábyrgð á tæknilegum útfærslum, eftirliti með rekstri, eftirfylgni með kostnaðaráætlunum og skjótum viðbrögðum við rekstrarógnum og atvikum. Auk þess mun viðkomandi eiga stóran þátt í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru við að endurbæta og straumlínulaga tækniumhverfið

Til að koma til greina í starfið þarftu að hafa menntun í kerfisfræði, tölvunarfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfinu. Góð samskiptahæfni er mikill kostur fyrir starfið sem og gott vald á ritaðri og talaðri íslensku. Viðkomandi þarf einnig að vera tilbúin/n að læra og hafa áhuga á að vinna í þeirri tækni sem við notum. Starfsreynsla af notendaþjónustu, kerfisstjórn og/eða reynsla af rekstri tölvukerfa er mikill kostur.

Five Degrees á Íslandi

Five Degrees á Íslandi er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir fjármálamarkaðinn. Hugbúnaðurinn okkar einfaldar alla umsýslu lána, verðbréfasafna, innlánsreikninga og greiðslusamninga og er í notkun hjá flestum fyrirtækjum og stofnunum á íslenskum fjármálamarkaði.

Starfstöðvar á Íslandi eru tvær, í Kópavogi og á Akureyri. Á báðum stöðum er lagður mikill metnaður í gott starfsumhverfi og að verkefnin sem unnin eru séu bæði fjölbreytt og krefjandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur og umsjón innri kerfa, s.s. Microsoft 365, Entra ID (Azure AD) og annarra skrifstofukerfa
  • Umsjón með netkerfi, þráðlausu neti, eldveggjum og VPN-tengingum
  • Aðstoð og umsjón með innri notendum og búnaði
  • Eftirlit með leyfum og hagræðingu í rekstri.
  • Öryggisuppfærslur, Öryggisstillingar innri kerfa
  • Vöktun öryggisatvika og viðbrögð við þeim
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. í kerfisfræði, tölvunarfræði eða sambærilegu
  • 2–4 ára reynsla af rekstri tölvukerfa og netkerfa
  • Góð þekking á Microsoft 365, Entra ID og Windows-umhverfi
  • Reynsla, þekking og áhugi á upplýsingaöryggi er kostur
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og góð yfirsýn yfir kostnað og samninga
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og þjónustulund
  • Reynsla af Intune og Ansible eða annarri sjálfvirknivæðingu í rekstri er kostur
  • Vottanir á sviði kerfisreksturs er kostur
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Símastyrkur
  • Íþróttastyrkur eða samgöngustyrkur
  • Búningsaðstaða og sturtur
  • Létt snarl, kaffi og mötuneyti
Auglýsing birt18. desember 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 12, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar