Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Kerfisstjóri í rekstrarþjónustu á Norðurlandi

Við leitum að öflugum kerfisstjóra á Norðurlandi í vettvangsþjónustuteymi rekstrarþjónustu Origo sem vill taka þátt í að reka, þróa og bæta upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina okkar. Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hefur metnað fyrir því að tryggja öryggi, stöðugleika og góðan rekstur upplýsingatæknikerfa. Ef þú hefur djúpan skilning á tækni, hefur gaman af því að finna rót vandamála, leysa þau og gera hlutina betur næst gæti þetta verið tækifæri fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur, vöktun og viðhald upplýsingatækniumhverfa viðskiptavina.

  • Rekstur og umsýsla Microsoft, Linux , og skýja - umhverfa.

  • Vettvangsþjónusta við viðskiptavini á norðurlandi

  • Þátttaka í breytingum, innleiðingum og umbótaverkefnum hjá viðskiptavinum.

  • Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini og samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt en viljum hinsvegar gjarna sjá:

  • Reynslu af kerfisstjórnun eða rekstri upplýsingatæknikerfa

  • Víðtæka þekkingu á Microsoft-umhverfi: Windows Server, Active Directory, Entra ID og Microsoft 365

  • Grunn skilning á netlausnum: Endabúnaði og WiFi kerfum

  • Áhuga og skilning á upplýsingaöryggi

  • Góða íslensku- og enskukunnáttu

  • Þjónustulund, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

Það er síðan stór plús ef þú hefur þar að auki:

  • Þekkingu á Azure og skýjaumhverfum

  • Þekkingu á Linux stýrikerfum og tengdum hugbúnaði

  • Þekkingu á sýndarumhverfum, afritunarlausnum og vöktun

  • Þekkingu á HPE/Juniper og Fortinet netbúnaði

  • Microsoft- eða aðrar fagvottanir

Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.

  • Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.

  • Stöðug þróun þekkingar.

  • Veglegur velferðarpakki.

  • Stuðningur í kringum barneignir

  • Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.

  • Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.

  • Samgöngustyrkur.

  • Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.

  • Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.

  • Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.

Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar