

Netsérfræðingur
Viltu vinna með því nýjasta í netlausnum?
Origo leitar að netsérfræðingi til að hanna, byggja og reka netinnviði fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Þú færð að vinna með HPE Juniper netbúnaði í Apstra- og Mist-uppsetningum, ásamt Fortinet netöryggis- og netbúnaði.
Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hannar og rekur netkerfi með afköst og rekstraröryggi að leiðarljósi. Ef þú vilt ekki bara halda netinu gangandi heldur skilja það, bæta það og tryggja að það virki gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.
-
Setja upp og reka netumhverfi á HPE Juniper búnaði með Apstra og Mist
-
Vinna með Fortinet eldveggi, VPN gáttir og aðrar netöryggislausnir
-
Setja upp og stilla beina, svissa og þráðlaus net hjá viðskiptavinum
-
Sjá um daglegan rekstur, vöktun og viðhald netkerfa, með áherslu á afköst, aðgengi og öryggi
-
Greina og leysa flókin netvandamál
-
Taka þátt í hönnun, breytingum og umbótum á netumhverfum og í innleiðingar- og þróunarverkefnum
-
Halda rekstrarskjölun í lagi og ráðleggja viðskiptavinum
Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt, en viljum gjarnan sjá:
-
Reynslu af rekstri og uppsetningu netkerfa
-
Mjög góðan skilning á TCP/IP og almennri netfræði
-
Reynslu af routing, switching, VLAN, VPN og þráðlausum netum
-
Þekkingu og reynslu af eldveggjum og netöryggislausnum
-
Reynslu af bilanagreiningu í flóknum netumhverfum
-
Góða íslensku- og enskukunnáttu
-
Þjónustulund, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Stór plús ef þú hefur þekkingu á:
-
Juniper, Apstra eða Mist
-
Fortinet (FortiGate, o.fl.)
-
Vöktunar- og rekstrarlausnum
-
Skýjanetum, t.d. Azure networking
-
Vottanir frá t.d. Juniper, Fortinet eða Cisco eru kostur
-
Framúrskarandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni
-
Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi
-
Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar
-
Stöðug þróun þekkingar
-
Veglegur velferðarpakki
-
Stuðningur í kringum barneignir
-
Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum
-
Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn
-
Samgöngustyrkur
-
Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur
-
Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri
-
Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar
Íslenska
Enska