
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Ertu næsti UT meistarinn okkar ?
Viltu bera ábyrgð á innviðum, öryggi og stöðugleika tæknikerfa Terra og dótturfélaga?
Við leitum að öflugum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum tæknisnillingi í teymið okkar. Ef þú brennur fyrir tækni, vilt vinna með öflugu og skemmtilegu fólki og takast á við spennandi áskoranir, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og viðhaldi á innviðum fyrirtækisins, þar á meðal netkerfum, þjónustu- og öryggislausnum.
- Uppsetning, uppfærsla og viðhald á hugbúnaði og vélbúnaði.
- Tryggja stöðugleika og öryggi kerfa.
- Veita tæknilegan stuðning og ráðgjöf til starfsmanna og notenda.
- Lausn á daglegum tæknivandamálum, þar með talið aðstoð við aðgang að kerfum, lausn á tölvuvandamálum og leiðbeiningar í notkun á kerfum og búnaði.
- Framkvæma þjálfun og uppfærslu á notkun kerfa og tækni innan fyrirtækisins.
- Vinna náið með öðrum deildum til að tryggja samræmingu og skilvirkni í tæknilegu umhverfi.
- Skilgreina og framfylgja stefnu og ferlum varðandi tæknilega uppsetningu og notkun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í tölvunarfræði, upplýsingatækni eða sambærilegu námi er kostur.
- Reynsla af rekstri og viðhaldi tölvukerfa og netumhverfis.
- Góð þekking á Office 365 umhverfinu og Azure.
- Reynsla af notendaaðstoð og tæknilegu stuðningsstarfi.
- Reynsla í skýjalausnum og gagnagrunnum.
- Mjög góð þekking á netumhverfi, kerfisstjórnunarkerfum og öryggislausnum.
- Góð þekking á Sharepoint.
- Þekking á helstu stýrikerfum (Linux, Windows) og netstillingum.
- Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund.
- Hafa lausnamiðaðan hugsunarhátt og getu til að takast á við krefjandi verkefni.
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Lead Game Designer
CCP Games

Kerfisstjóri á upplýsingatæknideild
Vegagerðin

Deildarstjóri innri og ytri þjónustu
Kópavogsbær

IT Support Administrator
Embla Medical | Össur

Blöndunarstjóri - Akureyri
Möl og Sandur

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer
Íslandsbanki

Senior Customer Solution Architect
PLAIO

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

NOC Specialist - Summer Position
Rapyd Europe hf.

Business Central Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Vilt þú halda íslenska flugstjórnarsvæðinu gangandi - á bakvið tjöldin?
Isavia ANS