
Fagkaup ehf
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu.
Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg og Hagblikk. Rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarsljósi.

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Viltu móta hvernig gögn og gervigreind umbreyta íslenskum iðnaði?
Fagkaup leitar að öflugum verkefnastjóra sem vill leiða uppbyggingu á gagnadrifnum rekstri. Þetta er lykilhlutverk í stafrænu umbreytingarferli þar sem markmiðið er skýrt: betri gögn, betri ákvarðanir og hagnýt gervigreind sem skilar raunverulegu virði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skilgreina og leiða verkefni tengd Master Data (vörur, birgjar, viðskiptavinir)
- Mæla og bæta gagnagæði með skýrum mælikvörðum
- Innleiða lausnir sem nýta gögn til að auka skilvirkni í rekstri
- Byggja upp hagnýtar AI lausnir sem svara sérhæfðum fagspurningum og styðja við sölu og þjónustu
- Samræma vinnu milli rekstrar, upplýsingatækni og ytri samstarfsaðila
- Leiða samtal og innleiðingu í samstarfi við upplýsingatæknistjóra
Umhverfið
Business Central · Power BI · Data Warehouse · Azure · Microsoft Fabric
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verkefnastjórnun, helst í gagnaverkefnum, BI, DWH og/eða AI
- Skilningur á Master Data, gagnagæðum og data governance
- Hæfni til að vinna þvert á deildir og samræma vinnu með ytri samstarfsaðilum
- Góð greiningarhæfni og geta til að umbreyta þörfum reksturs í skýrar lausnir
- Reynsla af Microsoft umhverfi (t.d. Business Central, Power BI, Azure eða Fabric) kostur
- Reynsla af innleiðingu AI lausna í rekstri kostur
Markmið
- Veruleg og mælanleg bæting gagnagæða
- Lausnir sem skapa sýnileg áhrif í daglegum rekstri
- Skýr og markviss skref sem byggja upp langtímasamkeppnisforskot
- Þetta er tækifæri fyrir einstakling sem vill ekki bara greina gögn – heldur leiða umbreytingu og skapa raunverulegt virði úr þeim.
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta
- Niðurgreiddur hádegismatur
Að auki bjóðum við:
-
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HugbúnaðarprófanirSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaTölvuöryggiVerkefnastjórnun í upplýsingatækniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

SAP forritari
Sjóvá

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í Kerfisstjórnun
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í rekstri upplýsingatæknikerfa
Míla hf

Ertu næsti UT meistarinn okkar ?
Terra hf.

Lead Game Designer
CCP Games

Deildarstjóri innri og ytri þjónustu
Kópavogsbær

Blöndunarstjóri - Akureyri
Möl og Sandur

Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer
Íslandsbanki

Senior Customer Solution Architect
PLAIO

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

NOC Specialist - Summer Position
Rapyd Europe hf.