OK
OK
OK

Netsérfræðingur

OK leitar að öflugum netsérfræðingi með haldgóða reynslu.
Við leitum að einstakling sem hefur brennandi áhuga á netmálum og almennu upplýsingaöryggi til að bætast í hópinn og hjálpa okkur í spennandi netverkefnum hjá viðskiptavinum OK. Starfið tilheyrir Kjarnalausnum OK og felst í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini ásamt uppsetningum og verkefnavinnu.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennur rekstur á netkerfum viðskiptavina og rekstur kjarnanets OK
  • Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni þjónustumála, skjölun kerfa og almennar úttektir
  • Ráðgjöf við hönnun netkerfa, val á búnaði og lausnum fyrir viðskiptavini ásamt uppsetningum
  • Aðstoða viðskiptavini við að leysa úr tæknilegum vandamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldgóð reynsla skilyrði, a.m.k. 5 ár af rekstri netlausna.
  • Stúdentspróf, iðnnám, tæknileg menntun eða háskólapróf sem nýtist í starfi æskileg.
  • Formlegar tæknigráður t.d. NSE, CCNA, CCNP, Network+ og CWNA eru æskilegar.
  • Reynsla af því að vinna í þjónustukerfum, þekking og reynsla á skjölun, áætlanagerð og úttektarskýrslur.
  • Áhugi á forritun og sjálfvirknivæðingu er kostur.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Bílpróf er skilyrði

    Fólkið sem við leitum að:


    • Hefur ríka öryggisvitund og áhuga á öryggismálum.
    • Á gott með samskipti og tilbúið til að vinna í þéttum hóp ráðgjafa.
    • Hefur áhuga á því að sækja sér þekkingu, gráður og meiri þjálfun. 
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar