
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Rekstrarlausnir Advania leitar að öflugum sérfræðingi með víðtæka reynslu af rekstri Microsoft umhverfa.
Í deildinni starfa 16 sérfræðingar með mismunandi tæknilegar áherslur. Deildin sinnir rekstri Windows og Linux netþjóna hjá viðskiptavinum, rekstri í Azure, Entra ID og Microsoft 365, ásamt rekstri á öðrum tengdum þjónustum og greiningu og úrlausn tæknilegra vandamála.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur Microsoft umhverfa, hybrid og on-premise
-Windows netþjónar og þjónustur
-Azure, Entra ID og Microsoft 365
- Umbótaverkefni og hagræðingar í eldri umhverfum.
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina.
- Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni þjónustumála og verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á rekstri Microsoft umhverfa
- Góð þekking á Windows Server og tengdum þjónustum
- Góð þekking á Azure, Entra ID og Microsoft 365
- Gott vald á PowerShell forritun
- Vottuð þekking á sviði ofangreindra Microsoft lausna er skilyrði
- 5+ ára reynsla af sambærilegu starfi
- Góð enskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi þjónustulund
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Infrastructure Engineer
Skývafnir

Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Leitum að kerfisstjóra
TACTICA

Kerfisstjóri = Geimfari
Atmos Cloud