TACTICA
TACTICA
TACTICA

Sérfræðingur í upplýsingatækni og kerfisrekstri

Ert þú með ástríðu fyrir upplýsingatækni og kerfisrekstri?

Þá erum við að leita að þér í hópinn okkar í Turninum Kópavogi

Hjá TACTICA er enginn dagur eins. Á morgun gætirðu verið að setja upp nýtt netkerfi hjá viðskiptavini, næsta dag að leysa vandamál í Microsoft 365 og svo að hjálpa öðrum viðskiptavini að flytja yfir í skýjalausn. Við leitum að einhverjum sem hefur breiða tækniþekkingu, brennur fyrir því að leysa vandamál og er ekki hrædd/ur við að kafa inn í eitthvað nýtt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning, viðhald og bilanaleit á tölvum, netkerfum og jaðarbúnaði
  • Stjórnun og umsjón á Microsoft 365, Azure AD, Exchange og öðrum skýjaþjónustum
  • Uppsetning og viðhald á Windows Server umhverfum og Active Directory
  • Google Workspace umsjón og stuðningur
  • Vettvangsþjónusta hjá viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu
  • Fjarþjónusta og úrræðaleit í síma og fjartengingu
  • Netkerfi, eldveggir, Wi-Fi og allt sem þar á við
  • Og öllu öðru sem tengist tæknimálum!
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Samskiptahæfni og jákvætt viðmót í þjónustu
  • Geta unnið í teymi og sjálfstætt
  • Breið tækniþekking og áhugi á að læra nýja hluti
  • Lausnamiðað hugarfar
  • Góð þekking á Windows umhverfi og netkerfum
  • Reynsla af Microsoft 365 og skýjaþjónustum
  • Þekking á Google lausnum
  • Bakgrunnur sem kerfisstjóri er kostur
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
  • Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Aðgengi að heitum mat í hádeginu
  • Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing birt19. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar