
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins. Hjá sjóðnum starfa um hátt í 60 manns með fjölbreyttan bakgrunn sem nýta þekkingu sína og hæfileika til að sinna áskorunum í síbreytilegu starfsumhverfi.
Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi. Við búum að mikilli reynslu og þekkingu og vitum að það krefst ábyrgðar og framsýni að ávaxta eignir sjóðfélaga með traustum hætti til næstu áratuga. LSR starfar í samræmi við vottað jafnlaunakerfi og jafnréttisáætlun sjóðsins.

Sérfræðingur í hagnýtingu gagna
Viltu leika lykilhlutverk í stafrænni uppbyggingu stærsta lífeyrissjóðs landsins? Hefur þú reynslu af meðhöndlun og hagnýtingu gagna? Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins leitar nú að framsæknum og öflugum sérfræðingi sem er tilbúinn til að taka með okkur næstu skref í stafrænni vegferð sjóðsins.
LSR hefur sett metnaðarfulla stefnu í upplýsingatækni, einkum að bæta þjónustu við sjóðfélaga. Grunnurinn að árangri á þessu sviði er bætt sýn á gögn og notkun þeirra en þar mun sérfræðingur í meðhöndlun og hagnýtingu gagna leika lykilhlutverk. Framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni með samhentum og metnaðarfullum hópi sem leiðir stafræn uppbyggingarverkefni LSR.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum
Reynsla úr sambærilegu starfi
Reynsla af Azure-skýjaumhverfi
Góð SQL-kunnátta ásamt þekkingu á högun og uppbyggingu gagnagrunna
Góður skilningur á tölfræði og hæfni til að túlka gögn
Almenn tækniþekking s.s. grunnskilningur á REST og SOAP-vefþjónustuskilum
Helstu verkefni og ábyrgð
Gagnaarkitektúr og hönnun gagnakerfa
Samþætting lausna og uppsetning kerfisþjóna
Smíði og viðhald á skýrslum og mælaborðum
Umsjón með uppbyggingu vöruhúss gagna
Hagnýting gagna við stjórnun, þjónustu og miðlunar
Tryggja rekjanleika, öryggi og réttleika gagna
Auglýsing birt4. apríl 2023
Umsóknarfrestur23. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Engjateigur 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AzureHönnun gagnagrunnaSQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna
Fjársýslan

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland ehf

Power Platform & AI Developer
Alvotech hf

SAP Functional Analyst – Manufacturing, Quality & PP/DS
Alvotech hf

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ

Bókari
Eðalfang ehf.

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug