
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Sérfræðingur í fyrirtækja- og ársreikningaskrár Skattsins
Skatturinn leitar að drífandi og áhugasömum sérfræðingi til starfa í ársreikningaskrá, á innheimtu- og skráasvið Skattsins. Ársreikningaskrá er hluti af fyrirtækja- og ársreikningskrá og fer með eftirlit með reikningsskilum félaga í atvinnurekstri. Hlutverk ársreikningaskrár er að taka á móti, varðveita og veita aðgang að skilaskyldum gögnum, þ.e. ársreikningum, samstæðureikningum og skýrslum stjórnar, og að hafa eftirlit með að innsend gögn séu í samræmi við ákvæði ársreikningalaga og viðeigandi reglugerða.
Gildi Skattsins eru fagmennska framsækni og samvinna. Um er að ræða fullt starf í aðalstöðvum Skattsins að Katrínartúni 6 í Reykjavík
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð og mat á hvort skilaskyld gögn séu í samræmi við ákvæði viðeigandi regluverks.
- Greining á frávikum og annmörkum ásamt samskiptum við félög vegna úrbóta.
- Samskipti við eftirlits- og regluvörsluaðila innanlands sem erlendis, m.a. um beitingu IFRS og ESRS staðla.
- Gerð stjórnsýsluákvarðana.
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast fyrirtækja- og ársreikningaskrá.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða), t.d. á sviði viðskiptafræði, lögfræði eða skyldra greina
- Þekking og/eða reynsla á sviði reikningshalds og endurskoðunar er æskileg
- Þekking og/eða reynsla á sviði félaga- og stjórnsýsluréttar er kostur
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð greiningarhæfni og reynsla af því að vinna úr flóknum fjárhagsupplýsingum er æskileg
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Hreint sakavottor
Auglýsing birt1. október 2025
Umsóknarfrestur15. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Hæfni
GreiningarfærniNákvæmniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (9)

Bókari í fjármáladeild
Orkan

Sérfræðingur í skipatæknideild
Samgöngustofa

Sérfræðingur í uppgjörum og reikningshaldi (Financial Accountant)
Air Atlanta Icelandic

Löggiltur endurskoðandi
Fjársýslan

Bókasafn Reykjanesbæjar - Forstöðumaður
Reykjanesbær

Sérfræðingar í bókhaldi og/eða uppgjörum
Löggiltir endurskoðendur ehf

Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir

Bókhald
Hagvangur

Accountant
Climeworks