Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sérfræðingar í fósturteymi

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar tvær 100% stöður sérfræðings í fósturteymi stofnunarinnar. Störfin heyra undir framkvæmdastjóra meðferðarsviðs. Starfsstöð er í Borgartúni 29, 105 Reykjavík en starfið krefst þess að viðkomandi geti ferðast um landið vegna starfa sinna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fræðsla og faglegur stuðningur við fósturforeldra.
  • Gerð umsagna um mat á hæfni fósturforeldra.
  • Halda skrá um fósturforeldra og fósturbörn.
  • Afgreiðsla, mat og úrvinnsla umsókna frá barnaverndarþjónustum um fóstur.
  • Ráðgjöf, handleiðsla og leiðbeiningar í einstaka málum til barnaverndar, annarra fagaðila og fósturforeldra.
  • Halda utan um fósturforeldranámskeið og sinna endurmenntun fósturforeldra.
  • Þátttaka í faglegri þróun fósturmála er falla innan verkefna Barna- og fjölskyldustofu.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem sálfræðingur eða félagsráðgjafi.
  • Þekking og hæfni til að meta upplýsingar um umönnunar- og meðferðarþörf barna.  
  • Reynsla og þekking á starfi barnaverndar og af fósturmálum kostur. 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt skipulagshæfni.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund ásamt færni til að vinna í teymi.
  • Mjög góð íslenskukunnáttu og góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Fríðindi í starfi
  • 36 klst. vinnuvika 
  • Íþróttastyrkur 
  • Samgöngustyrkur 
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur27. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar