Lækur
Lækur
Lækur

Starfsmaður í sérkennslu

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða starfsmanni með aðra menntun til starfa við sérkennslu. Helstu verkefni eru að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.

Lækur er sex deilda leikskóli staðsettur í Kópavogsdal þar sem stutt er í góð og skemmtileg útivistarsvæði á öllum árstímum. Í Læk er unnið með lýðræðislega nálgun í starfi með börnum.

Starfshlutfall er 100% og óskað er eftir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Athygli er vakin á því að Kópavogsbær hefur samþykkt 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilbiku, milli jóla og nýars og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)

Einkunnarorð leikskólans eru: Sjálfræði, umhyggja og virðing.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Færni og vilji til að vinna samkvæmt einstaklingsnámskrám í teymisvinnu.
  • Hæfni til að beita lausnamiðaðri nálgun við úrvinnslu verkefna. 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.
  • Ef ekki fæst þroskaþjálfi / leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Auglýsing birt26. ágúst 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Dalsmári 21, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar