Líf og sál
Líf og sál sálfræði- og ráðgjafastofa sérhæfir sig í verkefnum, ráðgjöf og fræðslu fyrir vinnustaði og félagasamtök.
Við höfum það að leiðarljósi að miðla metnaði okkar, þekkingu og reynslu í öll þau verkefni sem okkur eru falin.
Klínískur sálfræðingur
Líf og Sál sálfræði- og ráðgjafastofa, óskar eftir að ráða klínískan sálfræðing með brennandi áhuga og reynslu á meðferðarvinnu fullorðinna og á sviði vinnusálfræði.
Líf og sál hefur verið starfandi í tæp tuttugu og fimm ár og býr yfir mikilli reynslu á vettvangi vinnusálfræði sem og meðferðar. Markmið Lífs og sálar er að vera fremst í flokki og brautryðjendur um bætta vinnustaðamenningu á landinu. Viðkomandi kemur til með að starfa í okkar öfluga teymi starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meðferðarvinna fullorðinna
- Handleiðsla og ráðgjöf til mannauðsfólks og stjórnenda
- Úttektir á kvörtunum vegna sálfélagslegra áhættuþátta á vinnustöðum
- Vinnustaðagreiningar og áhættumat
- Fræðsla í formi fyrirlestra og námskeiða
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði meðferðar og vinnusálfæði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding til starfa sem sálfræðingur á Íslandi
- Klínísk reynsla æskileg
- Reynsla eða rík þekking á sviði vinnusálfræði æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Áhugi á teymisvinnu
- Öguð vinnubrögð og sveigjanleiki
- Góð greiningarfærni
- Góð íslenskukunnátta og kunnátta í erlendum tungumálum í töluðu og rituðu máli
- Vilji til áframhaldandi faglegrar þróunar
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur22. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)
Sálfræðingur Píeta samtökin
Píeta Samtökin
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sálfræðingur óskast
Vestmannaeyjabær
Sérfræðingar í fósturteymi
Barna- og fjölskyldustofa
Sálfræðingur í deild barna og fjölskyldna í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Starfsmaður í sérkennslu
Lækur
Atvinnuráðgjafi í Hinu Húsinu
Hitt húsið