Sálfræðingur Píeta samtökin
Vegna aukinna umsvifa og aðsóknar er óskað er eftir sálfræðingi í 60-80% starf í þverfaglegt meðferðarteymi Píeta samtakanna. Píeta samtökin veita gagnreynda meðferð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða. Samtökin bjóða einnig upp á stuðning fyrir aðstandendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Áhættumat í ljósi sjálfsvígshættu og/eða sjálfsskaða
· Mat á geðrænum vanda
· Einstaklings- og hópmeðferð
· Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
· Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
· Þátttaka í þróunarstarfi Píeta
Menntunar- og hæfniskröfur
· Löggild starfsréttindi sálfræðings
· Þekking og reynsla af Díalektískri atferlismeðferð (DAM) er kostur
· Hæfni í mannlegum samskiptum, hæfni í að vinna sjálfstætt og í teymi
· Hæfni í að halda kynningar og námskeið
· Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
· Góð almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta gunnhildur@pieta.is eða Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta ellen@pieta.is, eða í síma 552-2218