
Löggiltir endurskoðendur ehf
Löggiltir endurskoðendur ehf. leggja áherslu á að tryggja faglega og persónulega þjónustu í hæsta gæðaflokki. Það er markmið okkar að vinna og störf okkar fyrir viðskiptavini séu unnin af heilindum og skapi þeim ávinning sem nýtist þeim við að ná markmiðum sínum.Við leggjum mikla áherslu á endurmenntun starfsmanna og stöðuga þekkingaröflun.

Sérfræðingar í bókhaldi og/eða uppgjörum
Vegna aukinna umsvifa eru Löggiltir endurskoðendur að auglýsa eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum til starfa í bókhalds- og/eða uppgjörsvinnu. Við leitum að einstaklingum sem eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt og sem búa yfir reynslu af uppgjörum eða bókhaldi og annarri viðskiptaþjónustu. Bæði fullt starf og hlutastarf kemur til greina. Sveigjanlegur vinnutími.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla og afstemming bókhalds
- Önnur viðskiptaþjónusta, þmt. laun- og virðisaukaskattsskil fyrir rekstraraðila
- Ársreikningagerð og skattframtalsgerð lögaðila
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæði í starfi, vandvirkni og fagleg vinnubrögð
- Reynsla í bókhaldi og/eða uppgjörsvinnu
- Viðskiptafræði, viðurkenndur bókari eða önnur sambærileg menntun er kostur
- Þekking á helstu bókhaldskerfum og almenn tölvuþekking
- Áhugi á að verða framúrskarandi á þínu sviði er mikilvægur kostur
Fríðindi í starfi
Sveigjanlegur vinnutími.
Auglýsing birt25. maí 2024
Umsóknarfrestur30. júní 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bókari
Eðalfang ehf.

Payroll Specialist
Alvotech hf

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Afgreiðslustarf í Farmasíu apóteki
Farmasía

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands