
Safnvörður á Byggðasafnið á Garðskaga
Suðurnesjabær óskar eftir starfsmanni í fullt starf safnvarðar á Byggðasafnið á Garðskaga í Suðurnesjabæ. Leitast er eftir áhugasömum og þjónustuliprum einstaklingi sem sinnir fjölbreyttum verkefnum sem tengjast safnastarfi og vélasafni. Starfið er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á menningu, sögu og samskiptum við fólk, ásamt því að hafa áhuga og þekkingu á vélum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka gesta, leiðsögn um safnið og afgreiðsla í safnverslun.
- Safnvarsla og þátttaka í uppsetningu sýninga.
- Umsjón með vélasafni.
- Upplýsingaþjónusta við ferðamenn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Áhugi og þekking á vélum - iðnmenntun eða þekking sem nýtist í starfi
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Áhugi á safnastarfi, menningu og sögu svæðisins
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðumaður safna hjá Suðurnesjabæ, í tölvupósti á netfang [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 30. desember.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun og reynslu.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska
Enska










