

Rekstrarstjóri upplýsingatækni
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar nýtt starf rekstrarstjóra upplýsingatækni. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera.
Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.
Rekstrarstjóri upplýsingatækni er hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar. Undir skrifstofuna falla fjármál, mannauðsmál, gæðamál, upplýsingatækni, upplýsingaöryggi, skjalamál, húsnæðismál og öryggismál.
-
Rekstur á miðlurum og gagnagrunnum (kerfisstjórn)
-
Rekstur útstöðva og annars notendabúnaðar
-
Rekstur hugbúnaðarkerfa í samstarfi við fageiningar og birgja
-
Eftirfylgni með uppfærslum á stýrikerfi og hugbúnaði frá þriðja aðila
-
Uppsetning á vélbúnaði og hugbúnaði
-
Tæknilegur stuðningur, notendaþjónusta og fræðsla fyrir starfsfólk
-
Samskipti við birgja í upplýsingatækni
-
Verkefnastýring verkefna í upplýsingatækni
-
Vinna við stöðugar úrbætur á sviði upplýsingaöryggis
-
Reynsla af rekstri kerfa til a.m.k. þriggja ára skilyrði
-
Menntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði eða kerfisstjórnun mikill kostur
-
Þekking á Windows og Windows Server stýrikerfum skilyrði
-
Þekking á RedHat og/eða Debian ættuðum Linux stýrikerfum æskileg
-
Þekking á gagnagrunnum (Microsoft SQL Server, Oracle, MySQL og/eða PostgreSQL) og rekstri þeirra er mikill kostur
-
Þekking á rekstri netkerfa og þráðlauss aðgangsbúnaðar og þekking á uppbyggingu víð- og staðarnets er skilyrði
-
Reynsla af öryggisvöktun (SIEM) og samstarfi við öryggisvöktunarsetur (SOC) er æskileg
-
Reynsla af notkun á umsýsluhugbúnaði fyrir útstöðvar og miðlara er skilyrði
-
Reynsla af stöðugum úrbótum á sviði upplýsingaöryggis skilyrði
-
Reynsla af þjónustustörfum er mikill kostur
-
Skipulagshæfni, frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti













