Secret Lagoon
Secret Lagoon

Rekstrarstjóri

Secret lagoon, sem staðsett er á Flúðum, óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í stöðu rekstrarstjóra. Leitað er að reynslumiklum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í lifandi umhverfi. Um fullt starf er að ræða með staðsetningu á Flúðum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun
  • Ábyrgð á mannauðsmálum
  • Samskipti við viðskiptavini og þjónustuaðila
  • Innkaupastjórnun
  • Umsjón og ábyrgð með öryggis- og umhverfismálum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ferðaþjónustu er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, þjónustulund og lausnamiðað viðhorf
  • Frumkvæði og leiðtogahæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um Secret Lagoon

Secret lagoon, eða Gamla laugin eins og hún er gjarnan kölluð, er elsta sundlaug landsins. Laugin var fyrst byggð árið 1891 en síðar endurbyggð í upprunalegri mynd árið 2014. Umhverfis laugina eru margir hverir og er laugin 38-40°C heit allt árið um kring. Nánari upplýsingar er að finna á secretlagoon.is

Umsóknarfrestur er til og með 29. Október 2024. Umsókn óskast fyllt út á á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Aðstoð er veitt við að útvega húsnæði á svæðinu.

Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.

Auglýsing birt15. október 2024
Umsóknarfrestur29. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Flúðir viðbótarlóð , 845 Flúðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar