Intellecta
Intellecta
Intellecta

Ráðningarfulltrúi

Vegna aukinna umsvifa í verkefnum á sviði ráðninga óskum við eftir að ráða sjálfstæðan og árangursdrifinn einstakling í starf ráðningarfulltrúa.

Helstu verkefni:

  • Yfirferð og úrvinnsla ferilskráa/umsókna, umsagnaöflun, útbúa matsblöð
  • Samskipti við viðskiptavini og umsækjendur
  • Bókun og undirbúningur viðtala
  • Fyrirlögn prófa og verkefna
  • Auglýsingagerð og umsjón með samfélagsmiðlum
  • Forviðtöl og almenn viðtöl


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi í mannauðsmálum er kostur
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta og vilji til að halda mörgum boltum á lofti í einu
  • Reynsla af þjónustu- og markaðsstörfum
  • Mjög góð tölvufærni
  • Góð færni í íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti

Um Intellecta:
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á þremur sviðum: ráðgjöf, ráðningum og rannsóknum. Fyrirtækið hefur frá þeim tíma unnið með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og þróa og innleiða lausnir sem skila árangri. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is

Auglýsing birt6. janúar 2022
Umsóknarfrestur21. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Síðumúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar