dk hugbúnaður ehf.
dk hugbúnaður býður upp á alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi sem er þróað á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður og hefur verið einn vinsælasti viðskiptahugbúnaður landsins í yfir 25 ár. Í dag eru notendur dk hugbúnaðar hérlendis um 11.000. Þeir eru úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört. dk býður upp á heildarlausnir í hýsingarþjónustu og yfir 31.000 fyrirtæki eru í hýsingu hjá dk hugbúnaði. Í dag er hýsingarþjónusta dk hugbúnaðar ein sú stærsta á landinu.
Hjá dk starfar öflugur hópur fólks, með mikla reynslu, góða menntun og sérhæfingu. Starfsfólk dk hugbúnaðar er um 60 talsins.
dk, sem er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri, er sjálfstæð eining en hluti af samstæðu TSS (Total Specific Solutions), sem er með yfir 160 fyrirtæki í heiminum í dag í 26 löndum, sem býður upp á ýmsa möguleika í starfsþróun og þekkingaröflun.
Um árabil hefur dk fengið viðurkenningar sem Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo og sem Framúrskarandi fyrirtæki í rekstri Keldunnar og Viðskiptablaðsins ásamt því að fá viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar síðastliðin tvö ár. Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta sín og þróast í starfi.
Ráðgjafi
Við leitum að þjónustulunduðum og tækniliprum einstaklingi í öflugt teymi ráðgjafa dk.
Teymið aðstoðar viðskiptavini og svarar fyrirspurnum varðandi allar þær hugbúnaðarlausnir sem boðið er upp á. Ráðgjöfin er veitt í gegnum rafræn erindi og í símsvörun.
Það er markmið dk að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna með jákvæðni og útsjónarsemi að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
- Ráðgjöf og þjónusta við uppsetningu á viðskiptakerfum fyrir viðskiptavini
- Tæknileg aðstoð til viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræði, tölvunarfræði eða skyldar greinar
- Góð þekking og reynsla af dk eða sambærilegum kerfum er kostur
- Reynsla af þjónustustörfum við hugbúnaðarlausnir er kostur
- Bókhaldsþekking er kostur
- Jákvætt viðhorf og góð færni í samskiptum
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Símastyrkur
- Gott mötuneyti
- Skemmtilegir vinnufélagar
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt16. október 2024
Umsóknarfrestur30. október 2024
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Þjónustufulltrúar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sérfræðingur í Fjárstýringu
Alvotech hf
Ábyrgðaraðili stjórnkerfa hjá Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Þjónustufulltrúi í Þjónustuveri
ELKO
Innkaupasérfræðingur / Procurement Specialist
Alcoa Fjarðaál
Sölu- og þjónustufulltrúi í þjónustumóttöku
Ford á Íslandi | Brimborg
Fulltrúi í innkaupadeild
Terra hf.
Gagnaþróun í mannvirkjagerð
Optimum
Deloitte leitar að ráðgjafa í áhugaverð verkefni
Deloitte
Sérfræðingur á fjármálasviði
Jarðboranir
Gjaldkeri
Eignaumsjón hf
Við leitum að gjaldkera í útibú okkar á Akureyri
Arion banki